| Aftanroðablóm |
Lavatera trimestris |
Blóm bleik, hæð 65 sm. stórar klukkur. Þarf stuðning og sólríkan vaxtarstað. Harðgert. Ræktuð í 12 sm. pottum |
|
| Apablóm |
Mimulus x hybr. |
Ýmsir litir, hæð 15-20 sm |
|
| Bláhnoða |
Ageratum houstonianum |
Blá blóm, þolir skugga, hæð 20-25 sm, Þolir ekkert frost.
Ræktuð í 12 sm pottum. |
|
| Blákragafífill |
Brachycome iberidifolia |
Blá með auga, hengiblóm mjög blómsæll, falleg í skjóli. Ræktaður í 11 sm. pottum. |
|
| Blóðdropar Krists Fúksía |
Fuchsia x hybrida |
Margir litir og vaxtarlag bæði upprétt og hangandi. Ræktaðar í 12 sm- 4 l. pottum. |
 |
| Blómahorn Milljónbjalla |
Calibrachoa x hybrida |
Hengiplöntur í ýmsum litum, blómviljugar. Þarf sól og sæmilegt skjól |
|
| Blómatóbak |
Nicotiana hybrida |
Ýmsir litir, hæð 30 sm. Ræktuð í 12 sm. pottum. |
|
| Borgardís |
Diascia barberae |
Ýmsir litir. Blómviljug hengiplanta. Fljót að ná sér eftir veðurskemmdir. Ræktuð í 11-12sm. pottum. |
|
| Brúðarauga Kantlobelia |
Lobelia erinus |
Mörg litaafbrigði. Dökkblá, blá, hvít, sprengd lillableik, blandað. Hæð 10-15sm. |
|
| Brúðarslæða |
Gypsophila muralis |
Bleik eða hvít hengiplanta verður alsett örsmáum, bleikum blómum, fínleg og falleg. Sólríkur vaxtarstaður Ræktuð í 11sm. pt. |
|
| Brúðarstjarna Cosmos |
Cosmos bipinnatus |
Blandaðir litir hæð 60sm. Þessi finlega planta er ótrúlega harðgerð. Ræktuð í 12 sm. pottum. |
|
| Daggarbrá |
Leucanthemum paludosum |
Hæð 20sm. hvít blóm með gula miðju (eins og margarita). Harðgerð og blómviljug. |
|
| Dahlía Glitfífill |
Dahlia variabilis |
Ýmsir litir, blóm fyllt eða hálffyllt. Hæð25-30sm. Þarf sól og skjól. Ræktuð í 13sm. pottum. |
|
| Eilífðarfífill |
Helichrysum bracteatum |
Blandaðir litir, hæð 30sm. Góð til að þurrka. Harðgert. |
|
| Fagurfífill Bellis |
Bellis perennis |
Rauður, hvítur eða bleikur. Hæð 20sm, mjög harðgerður. |
|
| Fiðrildablóm Nemisía |
Nemesia strumosa |
Blandaðir litir, mjög blómviljug, hæð 20-30 sm. Er illa við vætutíð. |
|
| Fjóla |
Viola cornuta |
Margir litir, meira að segja rauðar. Þið þekkið öll þessar elskur. |
|
| Flauelsblóm |
Tagetes patula nana |
Smáblómstrandi. Ýmsir litir. Hæð 20sm Ræktuð í 6 og 12sm pottum |
|
| Flauelsblóm |
Tagetes erecta |
Stórblómstrandi, gul, orans eða hvít. Hæð 25sm. Ræktuð í 12sm pottum. |
|
| Friggjarbrá |
Chrysanthemum carinatum |
Blandaðir litir, hæð 60sm. körfublóm. Harðgerð og blómviljug. |
|
| Glæsisalvia Salvía |
Salvia splendens |
Rauðir langir klasar. Hæð 25sm. Þarf sól og skjól. Ræktuð í 12sm. pottum. |
|
| Hádegisblóm |
Dorotheanthus bellidiformis |
Blandaðir skærir litir, hádegisblómið þarf að vera þar sem sólar nýtur sem best, það lokar blómunum þegar ekki er sól. Ekki gefa því mikinn áburð. Harðgert. |
|
| Hengibrúðarauga Hengilobelia |
Lobelia erinus pendula |
Margir litir. Hangir 20-30sm þarf mikið vatn og næringu. Ræktuð í 11-12sm pottum |
|
| Hengifjóla |
Viola williamsii |
Ýmsir litir. Virkilega duglegar og fallegar hengiplöntur. Þarf ekki eins mikið vatn og hengilobelía. Ræktuð í 11sm. pottum. |
|
| Hengipelargonia |
Pelargonium pelatum |
Blóm bleik eða ljósfjólublá, blómviljug hengiplanta. Þarf skjól. Ræktuð í 12-15sm pottum. |
|
| Hengipetunía ‘Surfinia’ |
Petunia ‘Surfinia’ |
Gróskumiklar og duglegar hengiplöntur í mörgum litum. Ræktuð í 13-15sm pottum. |
|
| Hengisumarklukka |
Campanula |
Tveir litir. Bleik eða ljósblá hengiplanta stórar klukkur, ræktuð í 11sm pottum. |
|
| Héraskott |
Ovatus |
Falleg puntstrá sem gaman er að þurrka. |
|
| Hjartaax |
Briza maxima |
Falleg puntstrá sem gaman er að þurka. |
|
| Húsmæðrablóm |
Malvastrum capense |
Blóm bleik, hæð 40-60sm. Er nú reyndar fjölær sígrænn lítill runni, sem verður að taka inn á veturnar. Ræktuð í 13cm-3l. pottum. |
|
| Ilmgullrunni |
Hypericum |
Blóm gul síðan rauð ber sem verða síðansvört. Ekki má borða berin. Fjölær lítill runni. Ræktaður í 2 lítra pottum. |
|
| Ilmskúfur Levkoj |
Matthiola incana |
Blandaðir litir rautt, fjólublátt eða hvítt í löngum ilmandi klösum. Hæð 20 – 30 sm. |
|
| Járnurt Hengijárnurt |
Verbena x hybrida |
Margir litir. Virkilega dugleg og falleg hengiplanta. Illa við mikla bleytu. Ræktuð í 11 – 12sm pottum |
|
| Kornblóm |
Centaurea cyanus |
Blóm rauð, blá eða bleik. Hæð 25sm. Blöð grá. Harðgert sumarblóm. |
|
| Krosshnappur |
Glechoma hederacea |
Blöð mislit. Skemmtileg hengiplanta í ker eða hengipotta. |
|
| Ljónsmunni |
Antirrhinum majus |
Blandaðir litir, hæð 50-70sm. Ræktaðir í 13sm. pottum. |
|
| Ljónsmunni |
Antirrhinum majus |
Ýmsir litir, blóm í löngum klösum. Hæð 25 sm. Þarf sólríkan vaxtarstað. |
|
| Margarita Möggubrá |
Argyranthemum frutescens |
Gular, hvítar og bleikar. Uppréttur vöxtur. Mjög harðgerðar og blómviljugar langt fram á haust. Ræktuð í 12-20sm. pottum. |
|
| Meyjarblómi |
Godetia amoena |
Blandaðir litir eða bleikt. Hæð 25sm. stórar klukkur, þessar lufsur verða ótrúlega fallegar. Harðgert. |
|
| Morgunfrú |
Calendula officinalis |
Blóm orans, hæð 25sm stór fyllt. falleg og harðgerð. Þið munið eftir morgunfrúnni í garðinum hjá ömmu og afa? |
|
| Nellikka |
Dianthus |
Einföld, í ýmsum litum. Harðgerð. Ræktuð í 11sm. pottum. |
|
| Nellikka |
Dianthus |
Fyllt ,rauð blóm og ilmandi. Þarf sól og skjól. Ræktuð í 11sm pottum. |
|
| Njarðarbrá |
Chrysanthemum segetum |
Gul, hæð 60sm Harðgerð og blómviljug. |
|
| Paradísarblóm |
Schizanthus wisetonensis |
Blandaðir litir mjög blómviljug, 20–30sm. Er illa við langvarandi vætutíð eins og okkur. |
|
| Pelargonia Mánabrúður |
Pelargonium x hortorum |
Rauð, blandað 25–30sm. Þarf sól og skjól. Ræktuð í 12sm pottum. |
|
| Petunia Tóbakshorn |
Petunia grandifl. |
Sjá Tóbakshorn |
|
| Silfurkambur |
Senecio cineraria |
Hæð 25 sm. Blómstrar ekki en blöðin eru silfurgrá og loðin, stendur langt fram á vetur. Mjög fallegur og harðgerður. |
|
| Silfurfoss |
Dichondra argentea ‘Silver Falls’ |
Hengiplanta með silfurlit blöð. Ræktuð í 11sm. pottum. |
|
| Skjaldflétta |
Tropaeolum majus nanum |
Blandaðir litir, rauðir, gulir eða appelsínugulir. Dugleg hengiplanta. Bæði blöð og blóm góð í salat. Ræktuð í 12sm. pottum. |
|
| Skógarmalva |
Malva silvestris |
Fjólublá með æðum. Hæð 1- 2 metrar. Þetta er alveg satt. Þarf að binda upp. Kemur verulega á óvart. Ræktuð í 2 l. pottum. |
|
| Skrautkál |
Brassica |
Hvítt eða rautt (höfuðkál) falleg blaðhvirfing með hvítflekkóttum blöðum. Ef þið fáið leið á þessari jurt þá étið hana bara. Harðgert. |
|
| Skrautkál fíngert |
Brassica |
Blöð hvít eða rauðflekkóttur fínlegur blaðbrúskur. Harðgert og stendur lengi fram eftir hausti. Þið megið líka borða þessa. |
|
| Skrautnál Alissur |
Lobularia maritima |
Hæð 10sm. blóm ilmandi fjólublá eða hvít Falleg kantplanta. |
|
| Snædrífa |
Sutera cordata (Chaenostoma cordatum) |
Þetta er ótrúlega dugleg hengiplanta með bláum, bleikum eða hvítum blómum. Ræktuð í 11sm. pottum. |
|
| Sólargull |
Helichrysum |
Blöð grá, góð í hengipotta og ker. Harðgerð. |
|
| Sólboði |
Osteospermum sp. |
Stór körfublóm í ýmsum litum. þarf sólríkan stað, lokar blómunum í dimmviðri. Hæð 20-30cm. Harðgert. |
|
| Sólbrá |
Chrysanthemum multicaule |
Gul, hæð 10sm.sóllríkan vaxtarstað |
|
| Sólbrúður |
Pericallis x hybrida |
Hæð 30-40sm. þessi vekur óskipta athygli mjög harðgerð og blómviljug. Þolir illa mikinn hita, sterka sól og ofvökvun. Ræktuð í 12 sm pottum. |
|
| Sólhnappur |
Sanvitalia procumbens |
Blóm gul, blöð dökkgræn. Dugleg hengiplanta |
|
| Sumarhattur |
Rudbeckia |
Hæð 25-35sm. stór blóm gul með dökka miðju. Harðgerður. Ræktaður í 12sm pottum. |
|
| Stjúpur |
Viola x wittrockiana |
Hæð 10-25sm. Ýmsir litir. Harðgerðar. Það þekkja allir stjúpur. |
|
| Stjörnumalurt |
Artemisia stelleriana |
Hengi eða þekju planta, öll plantan hvítloðin, Ræktuð fyrst og fremst vegna blaðfegurðar. Minnir á jarðlægann silfurkamb |
|
| Sumarljómi |
Phlox drummondii |
Blandaðir litir, 15sm. Blómviljug. |
|
| Sumarnellikka |
Dianthus |
Hæð 10sm. blandaðir litir. Blómviljug. Dugleg. |
|
| Sumarstjarna |
Aster chinensis |
Blandaðir litir, fyllt blóm, hæð 20sm. Blómstrar frá júlí. |
|
| Tóbakshorn Petunia |
Petunia multiflora plena |
Fyllt blóm, blandaðir litir. Passið að klippa dauð blóm í burtu. Ræktuð í 12sm. pottum. |
|
| Tóbakshorn Petunia |
Petunia grandifl. |
Ýmsir litir. passið að klippa dauð blóm í burtu. Ræktuð í 12sm. pottum. |
|
| Vetrarax |
Briza media |
Falleg puntstrá. |
|